Skip to main content

DiscoverEU

If you're 18 and a resident in an Erasmus+ Programme country, it's time to expand your comfort zone

Finding new teammates starts here

Nýja evrópska Bauhaus leiðin

Þúert nýja evrópska Bauhaus. 

Það er innra með þér, í viðhorfi þínu og í ástríðunni fyrir að skapa fallega og sjálfbæra framtíð Evrópu án aðgreiningar, á meðan þú ferðast með okkur. 

Þetta er lofsöngur um það besta sem fortíðin hafði upp á að bjóða og óður til spennandi framtíðar. Þetta snýst um þig, þína kynslóð, þína Evrópu. 

Hvernig viljið þið hafa þessa sambúð? Hvers konar framtíð ertu að skapa? 

Komdu með okkur til að komast að því. 

 

Að takast á við áskoranir morgundagsins mun krefjast breytinga á því hvernig við hönnum og byggjum borgir okkar — þannig sköpum við falleg rými sem laga sig að loftslagsmarkmiðum og tryggja þátttöku allra.  

Komdu með í nýju evrópsku Bauhaus (NEB). Framtakið er sameining þriggja gilda: Sjálfbærni, inngilding og fagurfræði. Nýja evrópska Bauhaus leiðin vekur NEB hugtakið til lífs og veitir þér tækifæri til að kanna framsæknar borgir á DiscoverEU ævintýri þínu.  

Þessi leið inniheldur vel valda áfangastaði sem endurspegla þemu NEB.   

Sérhver leið innan NEB leiðakerfisins vísar til að minnsta kosti einnar borgar sem er heimili opinbers NEB verkefnis, til þess að þú getir séð NEB í verki. Þessar „NEB Hetjuborgir“ hafa sterk og bein tengsl við sýn Evrópusambandsins um fallega, sjálfbæra og inngildandi framtíð. Margar borgir hafa unnið með sérstök verkefni sem hafa hlotið viðurkeninguna New European Bauhaus Award eða New European Bauhaus Rising Star Award.  

Byrjaðu að skipuleggja ferð þína meðfram NEB leiðinni til að fá innsýn í framtíð evrópskra borga!